8.11.2008 | 16:10
Það á að skrifa (og segja) AÐ gefnu tilefni en ekki AF gefnu tilefni
Að gefnu tilefni: Í þessu fasta orðasambandi með lýsingarhættinum gefinn er notuð forsetningin að, gera e-ð, minnast á e-ð að gefnu tilefni. Aftur á móti er notuð forsetningin af í öðrum samböndum, t.d. (gera e-ð, kalla hópinn saman) af þessu, ærnu, sérstöku tilefni.
Í yfirlýsingu sem barst í dag frá Ferðaklúbbnum 4 x 4 segir að stjórn hans vilji koma því á framfæri af gefnu tilefni að þeir félagsmenn sem taka þátt í mótmælum Bifhjólasamtakanna Rudda séu þar á eigin forsendum en ekki í nafni Ferðaklúbbsins 4x4. Undir þetta skrifar formaður 4 x 4 Ágúst Birgisson.
Vonandi les Ágúst Birgisson þetta!
![]() |
Reykspóluðu við Alþingishúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Annað merki um það hversu frábær blaðamennska er í gangi þarna, að Ágúst er ekki formaður F4x4. Væri ekki nær að birta yfirlýsinguna orðrétt?
Valdís (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 16:33
Takk Valdís, fyrir ábendinguna.
persóna, 8.11.2008 kl. 16:50
frábær blaðamenska. en berið saman yfirlýsinguna frá 4x4
http://f4x4.is/new/news/default.aspx?file=618
Bæring (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 17:30
Yfirlýsing
Stjórn Ferðaklúbbsins 4x4 vill koma því á framfæri að gefnu tilefni að þeir félagsmenn sem taka þátt í mótmælum Bifhjólasamtakanna Rudda eru þar á eigin forsendum og ekki í nafni Ferðaklúbbsins 4x4.
Þetta er s.s. yfirlýsingin sem Bæring bendir á, þar sem kemur fram "að gefnu tilefni" ..
Blár,
hvernig skyldu vond gæði vera?
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.11.2008 kl. 17:45
persóna, 8.11.2008 kl. 17:59
Takk Bæring!
persóna, 8.11.2008 kl. 18:00
Ég er bara nokkuð viss um að það eigi að skrifa „Af gefnu“...
Þar sem þér er svona umhugað um íslenska tungu og rétta ritun hennar mæli ég með að þú notir íslenskar gæsalappir í bloggnafninu sbr. „Ábyrga“ blaðakona ;)
Nonni (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 19:35
Ég gef að gefnu tilefni mitt atkvæði.
Gunna (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 20:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.